Leitarvélar
Google
Lycos
Leit.is
Gegnir
Símaskráin
Vefmiðlar
Morgunblaðið
Dagblaðið
Deiglan
Eyjan
Greinar & Röfl
Ert þú ræningi?
Voff, voff, voff !
Er hægt að græða á að gefa hugbúnað?
Nothæfar upplýsingar gegn tölvuþjófum?
Um innra.net vefinn
Um vefþjóninn
Vefkerfið
True Electronics
Núið
Fréttaskot
Nýtt Ubuntu
Vefir fyrir forritara
PHP
MySQL
Trolltech Qt
AVR Freaks
Java
Jakarta
Linux Dreifingar
Mandriva
Red Hat
Slackware
Tom's Root Boot
Ubuntu
Debian
S.u.S.E.
Þjónusta
GNU/Linux aðstoð
Skráning MAC addressu
Internetið
Vefþjónar heimsins

VOFF, VOFF, VOFF !

KriTor, 18. maí 2003. Síðast breyttt 25. september 2008.

Hvað skyldi þetta þýða? Voff, voff, voff? Jú kæri lesandi, þetta er minn framburður á þessu bévítans WWW sem umsjónarmenn vefþjóna troða gjarna inn í URL.

Ertu ekki orðinn leið(ur) á þessu eilífa gelti? Nú á dögum, þegar stýrikerfi kunna orðið að port-forwarda, og vefþjónarnir sjálfir jafnvel að load-balancera, er þetta vofferí alger tímaskekkja.

Er það virkilega ekki nóg að URL fyrir vefsíður hefjist á "http://", sem er skammstöfun og auðkenni fyrir "hypertext transport protocol" og merkir beinlínis "gemmér samband við vefþjón takk"? Þarf alltaf að vera að lengja með því að tilgreina sérstakan vefþjón í "http://www..." og gelta þetta endalaust yfir netið? Gateway vélin veit hvort eð er þegar vafrinn biður um port 80 að það er átt við vefþjóninn.

Reyndar er engu líkara en að það sé verið að gera grín af einhverjum sem stamar : "http://www", máske átti þetta í upphafi bara að vera "htp:/v.eitthvað" hver veit?

Ég allavega, er löngu orðinn hundleiður á þessu voffvoffvoffi, og læt þetta aldrei sjást fyrir þá vefi sem ég sé um. Það er reyndar ógeðslega fyndið að heyra þuli í útvarpi reyna að koma URL á framfæri við hlustendur og gelta svona heillengi áður en þeir fara að hixta upp skástrikum með púnktum á milli ;) En þetta eru reyndar einu skiptin sem ég myndi sakna þessa voff, voff, voffs.

Hættum þessu gelti. Þetta er alger óþarfi.

Kristinn Örn Torfason

Aftur á forsíðu

Copyright © KriTor
Managed with TagBang!