Leitarvélar
Google
Lycos
Leit.is
Gegnir
Símaskráin
Vefmiðlar
Morgunblaðið
Dagblaðið
Deiglan
Eyjan
Greinar & Röfl
Ert þú ræningi?
Voff, voff, voff !
Er hægt að græða á að gefa hugbúnað?
Nothæfar upplýsingar gegn tölvuþjófum?
Um innra.net vefinn
Um vefþjóninn
Vefkerfið
True Electronics
Núið
Fréttaskot
Nýtt Ubuntu
Vefir fyrir forritara
PHP
MySQL
Trolltech Qt
AVR Freaks
Java
Jakarta
Linux Dreifingar
Mandriva
Red Hat
Slackware
Tom's Root Boot
Ubuntu
Debian
S.u.S.E.
Þjónusta
GNU/Linux aðstoð
Skráning MAC addressu
Internetið
Vefþjónar heimsins

Nothæfar upplýsingar gegn tölvuþjófum?

KriTor, 15. Júlí 2004. Síðast breyttt 25. september 2008.

Ég sá í mogganum að SKÝRR og Opin Kerfin eru farin að bjóða tölvueigendum einhvers konar þjófavörn í tölvur. Frábær viðleitni, og sjálfsagt margir sem munu nýta sér þessa þjónustu.

Undirritaður er hins vegar nokkuð viss um að "þjófarnir" verði snöggir að finna leiðir í kringum svona lausnir á einn eða annan hátt. Ekki vanmeta þjófinn. Jafnvel þótt þjófurinn sjálfur sé í flestum tilfellum fíkill sem er að stela til að fjármagna fíkn sína, þarf það ekki endilega að þýða að sá sem selur honum fíkniefnin gegn greiðslu með þýfinu (fartölvunni þinni) sé ekki fær um að fara í kringum þessar varúðarráðstafanir.

Hér er annars konar hugmynd sem kostar lítið sem ekkert : Eigendur skrá MAC addressur innbyggðs netbúnaðs tölva sinna hjá sér og nota þær síðar til að finna stolnar vélar með aðstoð Internet Þjónustuaðila. Þetta á við um allan tölvubúnað sem hefur innbyggðan netbúnað, fartölvur, borðtölvur og beina. Að minnsta kosti má nota MAC tölurnar til að bera kennsl á endurheimt þýfi og sem sönnunargögn.

Hvað er MAC addressa? "MAC" er skammstöfun fyrir Media Access Control address. Þetta er númer sem er brennt inn í stýrirás netbúnaðarins í tölvunni þinni. MAC númerið á að vera einstakt fyrir netbúnaðinn í viðkomandi tölvu. Númerið er notað til að auðkenna vélina þína þegar hún tengist sínum nánasta netbúnaði og fær úthlutað td. IP númeri (Internet Protocol) hjá þjónustuaðila til að komast í internetsamband.

Það er reyndar líklegt að stolin vél verði sett bakvið netþjón eða ADSL beini (stolinn?) sem felur þannig MAC addressu vélarinnar fyrir umheiminum. Einnig getur nýr 'eigandi' vélarinnar sett í hana nýtt netspjald og þannig komist hjá að nota innbyggða búnaðinn.

Ég er hins vegar þess fullviss að fyrr eða síðar klikkar nýi 'eigandinn' á þessu, gleymir sér, lánar vélina, eða bara hreinlega fellur í þá gryfju að halda að ekki sé fylgst með þessarri MAC addressu lengur. Einn daginn mun koma að því að MAC addressa stolnu vélarinnar fer að fljóta um á sjáanlegum hluta netsins aftur, og þá grípum við það, flettum upp heimilisföngum og förum í heimsókn með löggunni.

Flestar tölvur sem verið er að stela eru fartölvur, og þær eru allar með innbyggðan netbúnað, annaðhvort þráðlausan eða fyrir kapal. Meira að segja flestar borðtölvur í dag eru komnar með innbyggðan netbúnað sem er sambyggður móðurborði vélanna. Hvað er að því að brýna fyrir tölvueigendum að skrá hjá sér MAC addressur netbúnaðarins í vélunum? Það er ekki hlaupið að því að breyta MAC addressu innbyggðs netbúnaðar, og sjálfsagt miklu meira mál heldur en að komast í kringum hvers konar forrit sem á að virka sem þjófavörn.

Það er auðvelt fyrir Internet þjónustuaðila að fylgjast með og grípa MAC addressurnar þegar vélarnar eru nettengdar í gegnum beina (router) sem endanotandinn þarf til að nettengjast. Þjónustuaðilinn þarf einungis að kanna ARP töflur (Address Resolution Protocol) beina sinna með reglulegu millibili. Á mjög algengum beini (Zyxel) er amk. ein skipunin til að sjá þetta ip arp status.

Hver einasti beinir er tendur símalínu sem hefur símanúmer og þar með rekjanlegan ábyrgan aðila að baki sem unnt er að kæra. Ábyrgð hvers þjónustuaðilans ætti að vera að vakta sína beina og tilkynna lögreglu um uppgötvun MAC addressa af listanum yfir stolnar vélar ásamt tíma og símanúmeri. Þá er hreinlega hægt að sækja vélarnar heim til þess sem keypti vélina á þjófamarkaðinum.

Einnig væri hægt að hugsa sér að lögregla byði uppá að eigendur tölva gætu skráð MAC addressur sínar á lista sem lögregla varðveitti. Lögregla miðlaði síðan stolnum MAC addressum til internet þjónustuaðila þegar þess þyrfti. Jafnvel væri hægt að hugsa sér að seljendur tölvubúnaðar skráðu MAC addressur tölva að ósk kaupanda og kæmu þeim áfram til lögreglu.

Skráning MAC addrssa, áróður til tölvueigenda og virk eftirfylgni í þjófnaðarmálum sem upp koma mun skila sér fljótt í því að eftirspurn eftir stolnum tölvum minnkar og ef vel tekst til hverfur, og þar með missa þjófarnir áhugann á að stela tölvubúnaði.

Hvað finnst þér? Er ekki að minnsta kosti skynsamlegt að skrá hjá sér MAC addressurnar í tölvunum okkar?

  • Windows (XP) :
    1. Opna "Control Panel" og tvísmella á "Network Connections"
    2. Tvísmella á "Local Area Connection"
    3. Velja "Support" flipann í glugganum sem opnast og smella á "Details" takkann þar
    4. Skrá hjá þér "Physical Address" í listanum sem birtist
    Einnig er hægt að gefa skipunina "ipconfig /all" í command glugga (DOS) og sjá MAC addressuna sem "Physical Address" í listanum sem birtist.
  • GNU/Linux :
    1. Opna terminal og gefa skipunina '/sbin/ifconfig'
    2. Skrá hjá þér 'HWaddr' fyrir hvert nettengi í listanum sem birtist.
  • WMV skrá sem útskýrir þetta betur ef þú nennir að hala henni niður (9 megabyte)
MAC addressur (HWaddr) eru á þessu formi : '00:30:4F:21:57:F8' (GNU/Linux) eða '00-30-4F-21-57-F8' (Windows) . Tölurnar sjálfar náttúrulega mismunandi.

Ég ráðlegg þér lesandi góður að skrá allar MAC addressur vélanna þinna. Þær eru að minnsta kosti ágætlega nothæfar til að bera kennsl á tölvur sem Lögregla hefur endurheimt úr klóm ræningja.

Kristinn Örn Torfason

Aftur á forsíðu

Copyright © KriTor
Managed with TagBang!