Hjálp við að skrá MAC addressur
KriTor, 2. desember 2005.
Við hjá Innra.net höfum ákveðið að hjálpa fólki að skrá MAC addressur tölvanna sinna í þeirri von að upplýsingarnar nýtist ef vélinni er stolið.
Einnig bjóðumst við til að varðveita þessar upplýsingar sem óháður aðili ef til þarf að grípa síðar. Þessi þjónusta er veitt gegn mjög vægu föstu gjaldi sem aðeins er greitt einu sinni.
Okkur er mjög í mun að skrá réttan eiganda viðkomandi vélar og þurfum því staðfestingu með sölunótu eða sambærilegum gögnum þessu til sönnunar.
Ef þú vilt aðstoð við að skrá MAC addressuna þína og/eða geyma upplýsingarnar hjá okkur, er símanúmerið 615-0004. Einnig geturðu reynt að skrá upplýsingarnar sjálf/sjálfur og varðveitt.
Kristinn Örn Torfason
Aftur á forsíðu
|