Eilítið um gamla innra.net vefþjóninn.
Það er einkennandi fyrir GNU/Linux, að sá vélbúnaður sem dugar til að gera stórmerkilega hluti, þarf ekki endilega að vera merkilegur.
Vélin sem hér er lýst er gamli netþjónn Innra.net, og þjónaði því hlutverki vel frá 2000 til 2006. Margir myndu afgreiða þessa vél sem ruslahaugamat við fyrstu sýn. Gömlum "afdönkuðum" vélum má breyta í þarfa þjóðfélagsþegna á einfaldan hátt með Linux stýrikerfi og netkorti. Átt þú ekki einhvers staðar gamla pentium vél?
Hugbúnaðurinn
- Að sjálfsögðu GNU/Linux
- Apache m/PHP og þar frameftir götunum
- MySQL þjónn f/vefkerfið
- Auðmjúk ADSL tenging
- Nafnaþjónn
- Póstþjónn
- SSH þjónn
- NTP biðill/þjónn
- Eldveggur
- DHCP þjónn f/staðarnet
- Router f/staðarnet
- CVS þjónn f/staðarnet
- SAMBA þjónn f/staðarnet (það eru 2 windows vélar hérna einhvers staðar)
- NFS þjónn f/staðarnet
- Prentþjónn f/staðarnet
- ..og sitthvað fleira sem ekki er gefið upp af öryggisástæðum. Fæst af þessu er aðgengilegt nema af staðarneti.
Vélbúnaðurinn
Getið þið ímyndað ykkur þessa vél keyra windows útgáfurnar af þessu öllu? Það yrði stutt keyrsla :)
- Vélin er "noname" ferðavél, keypt í BT 1998 á tilboði (fylgdi með henni Nokia 6110 farsími)
- i586 mobile gjörvi, 266Mhz MMX, ~532 bogomips
- nýlegur 20GB diskur
- 64MB vinnsluminni
- tvö 10/100 netkort (f/router)
- CD og diskettudrif
- parallell, serial og USB port
Frýnileg vél ekki satt :
Ofaná vélina datt full 2L kókflaska vorið 2000 og eyðilagði í henni skjáinn sem var 800x600 LCD, þannig að vélin varð ónothæf sem kjölturakki. Henni var því gefið það hlutverk að vera netþjónn.
Einn daginn sprakk í henni spennugjafinn (með hvelli+blossa) og síðan þá var notast við ATX spennugjafann þarna til vinstri á efri myndinni sem fannst á ruslahaug hjá fyrirtæki hér í bæ. Leifarnar af þeim sem sprakk má sjá á minni myndinni.
Vélin var höfð svona sundurrifin síðan spennugjafinn sprakk. Merkilegt nokk, þá lifði vélin sprenginguna af að því undanskildu að rótarfilesystemið hvarf, en það náðist fljótlega inn aftur með því að klappa disknum aðeins með annarri GNU/Linux vél.
Við komum okkur loks upp öflugri server og tengingu í byrjun árs 2006, og varla tímdum því meðan þessi vél hélt áfram að tikka og sinna hlutverkinu svona vel. Hún er núna varðveitt í kassa blessunin, og bíður nýs hlutverks.
Aftur á forsíðu
|