Leitarvélar
Google
Lycos
Leit.is
Gegnir
Símaskráin
Vefmiðlar
Morgunblaðið
Dagblaðið
Deiglan
Eyjan
Greinar & Röfl
Ert þú ræningi?
Voff, voff, voff !
Er hægt að græða á að gefa hugbúnað?
Nothæfar upplýsingar gegn tölvuþjófum?
Um innra.net vefinn
Um vefþjóninn
Vefkerfið
True Electronics
Núið
Fréttaskot
Nýtt Ubuntu
Vefir fyrir forritara
PHP
MySQL
Trolltech Qt
AVR Freaks
Java
Jakarta
Linux Dreifingar
Mandriva
Red Hat
Slackware
Tom's Root Boot
Ubuntu
Debian
S.u.S.E.
Þjónusta
GNU/Linux aðstoð
Skráning MAC addressu
Internetið
Vefþjónar heimsins







Vefkerfið

"TagBang", er heimasmíðaða vefkerfið sem notað er við gerð þessa vefs. Þetta er að verða býsna háþróað kerfi, skrifað í hlutbundnu PHP.

Þetta er endurkvæmnasti (recursive) kódi sem undirritaður hefur nokkru sinni skrifað. Í heild er kjarninn ekki nema um 1000 línur þótt ótrúlegt megi virðast.

Kröfur
Kröfurnar sem lagt var upp með við gerð þessa vefkerfis voru eftirfarandi :
  1. Kerfið skal skrifað í hlutbundnu forritunarmáli
  2. Kerfið skal vera knúið af forsniðnum lýsingum (e. templates)
  3. Kerfið skal geta notað SQL gagnagrunn.
    • Kerfið skal einnig geta lesið og skrifað innihalds- (e. content) og forsniðsskrár (e. templaes) beint á disk og þannig verið óháð SQL gagnagrunni.
  4. Innihald (e. content) og útlit skal vera aðskilið.
  5. Kerfið skal vera einfalt í notkun fyrir almennan notanda (háleitt markmið)
  6. Kerfið skal notast við kóðahylki og smákóða (e. cartridges, applets)
    • Kerfið skal vera einfalt í útvíkkun fyrir forritara (háleitt markmið) með því að auðvelt skal vera að skrifa fyrir það kóðahylki (e. cartridges).
    • Kerfið skal vera einfalt í útvíkkun fyrir forritara (háleitt markmið) með því að auðvelt skal vera að skrifa fyrir það smákóða (e. applets).
Hvað þessar kröfur varðar, er þetta smám saman að síga saman og verða að raunveruleika... eða þannig. Það drepur engan að hafa háleitar hugmyndir alla vega.

Staðan
15.08.2008 Um þessar mundir er verið að skrifa ýmiss konar kóðahylki (cartridge) fyrir TagBang, lýsingar á kóðanum og lágmarks handbók. Einnig er viðhaldsviðmót (admin interface) í gagngerri endurskrift.
  1. Kerfið skal skrifað í hlutbundnu forritunarmáli
    Kröfu mætt með hlutbundnu PHP
  2. Kerfið skal vera knúið af forsniðnum lýsingum (e. templates)
    Kröfu mætt með forritun endurkvæms forsniðslýsingakerfis. (Kjarni)
  3. Kerfið skal geta notað SQL gagnagrunn.
    Kröfu mætt :
    Kóðahylki fyrir MySQL. (Kjarni)
    Auðvelt að bæta við kóðahylkjum fyrir aðra gagnagrunna.
    • Kerfið skal einnig geta lesið og skrifað innihalds- (e. content) og forsniðsskrár (e. templaes) beint á disk og þannig verið óháð SQL gagnagrunni.
      Kröfu mætt með 'Filebase' kóðahylki (Kjarni)
  4. Innihald (e. content) og útlit skal vera aðskilið.
    Kröfu mætt : Aðskilin innihaldshylki með eigin útlitslýsingar (template).
  5. Kerfið skal vera einfalt í notkun fyrir almennan notanda (háleitt markmið)
    Ekki frágengið : Viðhaldsviðmót enn í vinnslu (Kjarni)
  6. Kerfið skal notast við kóðahylki og smákóða (e. cartridges, applets)
    • Kerfið skal vera einfalt í útvíkkun fyrir forritara (háleitt markmið) með því að auðvelt skal vera að skrifa fyrir það kóðahylki (e. cartridges).
      Ekki frágengið : Viðmót (interface) kóðahylkja enn í mótun (Kjarni)
    • Kerfið skal vera einfalt í útvíkkun fyrir forritara (háleitt markmið) með því að auðvelt skal vera að skrifa fyrir það smákóða (e. applets).
      Ekki frágengið : Forritun smákóðahylkja enn í mótun (Kjarni)

Kristinn Örn Torfason

Aftur á forsíðu

Copyright © KriTor
Managed with TagBang!