Ubuntu 10.04rc, release candidate "Lucid Lynx" komið á Huga
KriTor, 29.04.2010, 12:05
Nýjasta BETA útgáfa af Ubuntu GNU/Linux, 10.04rc "Lucid Lynx", er komin á vef Huga.
Ubuntu er byggt á Debian GNU/Linux dreifingunni og er með sterkari Linux dreifingum í dag, líklega vegna þess hve auðvelt það er í uppsetningu og uppfærslum og hve vel það fellur að ýmsum vélbúnaði.
Ubuntu hafa undanfarið gefið út tvær samhliða uppsetningar á GNU/Linux útgáfum sínum sem þeir nefna Desktop (Vinnustöð) annars vegar og "Server" (Þjónn) hins vegar. Desktop útgáfan hentar í alla venjulega daglega skrifstofuvinnslu og sem og þróun hugbúnaðar og hönnunar mynda og skjala. Server útgáfan hentar hins vegar afskaplega vel til að setja upp LAMP (Linux-Apache-MySql-Php) vef- og gagnagrunnsþjóna. Server uppsetningin er einskorðuð við virkni, viðmót hrátt, án grafísks viðmóts, og sérhæfð sem net- eða vefþjónn.
Það er alltaf hægt að ná sér í nýjustu Ubuntu dreifinguna á Huga, ásamt því að ná sér í eldri útgáfur ef svo ber undir. Vinnustöðvar útgáfan (Ubuntu desktop) er um 650Mb ISO skrá, og þjóns útgáfan (Ubuntu server) er 700Mb ISO skrá. Skrárnar er hægt er að brenna á geisladisks, prufa og/eða setja upp á vélinni sinni samhliða öðrum stýrikerfum.
Ubuntu Desktop (Vinnustöð) er tilvalið fyrir byrjandann jafnt sem þá sem lengra eru komnir.

Aftur á forsíðu
|